Tjörn

Leikskóli

Öldugötu 19, Tjarnargötu 33
101 Reykjavík

Börn í sandkassa með rólur í baksýn á útisvæði leikskólans Tjarnar

Um leikskólann

Opnunartími Tjarnar er frá 7:30 til 16:30

Leikskólinn Tjörn er samrekstur tveggja leikskóla; Tjarnarborgar og Öldukots. Leikskólarnir sameinuðust árið 2009 og þar starfa um 25 manns. Á leikskólanum eru 76 börn sem skiptast á fjórar deildir, tvær í hverju húsi. Í Tjarnarborg eru deildirnar Lækur og Tjörn en í Öldukoti eru deildirnar Miðhús og Melhús. 

Leikskólastjóri er Hulda Ásgeirsdóttir

Leikskólinn Tjörn

Viltu vita meira um Tjörn? Í þessu örstutta myndbandi er stiklað á stóru um starfsemi leikskólans. Unnið af Erlu Stefánsdóttur og Antoníu Lárusdóttur fyrir skóla- og frístundasvið. 

Hugmyndafræði

Gildi Tjarnar eru frumkvæði, vinátta og gleði

 

Leikskólinn Tjörn byggir starf sitt á hugmyndafræði Reggio Emilia skólana. Það sem einkennir Reggio skólana er fyrst og fremst trú á getu barna og trú á að þau hafi vit og vilja til að taka þátt í og móta það starf sem fram fer í skólanum. Þessi hugsun rímar vel við nýja Menntastefnu Reykjavíkur, þar sem leiðarljós stefnunnar er: barnið sem virkur þátttakandi. Í því ljósi var lögð áhersla á að eiga faglega gagnrýna umræðu til að móta skólastarf Tjarnar við sameiningu leikskólanna tveggja. Með því skapaðist sameiginleg sýn og viðhorf til stefnu skólastarfsins sem er í sífelldri þróun og endurskoðun ásamt því að hugmyndafræðin hefur dýpkað.

Leikskólastarf

Skólanámskrá

Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf á Tjörn? Í skólanámskrá finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í leik, námi og starfi. 

Leikskóladagatal

Hvenær eru starfsdagar á Tjörn? Í skóladagatali finnur þú upplýsingar um frídaga í leikskólanum og ýmislegt fleira. 

Starfsáætlun

Hvað er framundan á Tjörn? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars innra og ytra mat leikskólans fyrir síðasta ár, umbótaáætlun, leikskóladagatal og ótalmargt fleira. 

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í leikskólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að leikskólastarfi. Foreldrafélag og foreldraráð eru starfrækt í öllum leikskólum Reykjavíkurborgar. 

Barn í blárri úlpu að róla sér á leikskólanum Tjörn

Miðstöð Tjarnar

Leikskólinn Tjörn tilheyrir Vesturmiðstöð. Vesturmiðstöð sinnir fjölbreyttri þjónustu við íbúa í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum og er alhliða upplýsingamiðlun um þjónustu borgarinnar. Þar er veitt velferðarþjónusta, skólaþjónusta við leik- og grunnskóla, daggæslu- og frístundaráðgjöf og ýmis önnur þjónusta. 

 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Tengiliður Tjarnar er: Fjóla Eðvardsdóttir

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​