Loftslagsviðurkenningar veittar í fyrsta sinn

Skipulagsmál Umhverfi

""

Loftslagsviðurkenningar Festu og Reykjavíkurborgar voru veittar í fyrsta sinn í morgun. HB Grandi hlaut Loftlagsviðurkenninguna í ár.

Reykjavíkurborg og Festa veittu loftslagsviðurkenningar í fyrsta sinn á Loftslagsfundi Festu og Reykjavíkurborgar 8. desember 2017. Markmið viðurkenninganna er að vekja athygli á því sem vel er gert í loftslagsmálum og vera hvatning til annarra.

Að þessu sinni hlaut HB Grandi loftslagsviðurkenningu Festu og Reykjavíkurborgar, vefurinn loftslag.is hlaut fræðslu- og upplýsingaviðurkenningu vegna loftslagsmála og þá hlaut ISAVIA hvatningarviðurkenningu.

HB Grandi. Félagið telur fram losunarbókhald í ársskýrslu félagsins fyrir árið 2016 í fyrsta sinn og hefur tengt losun gróðurhúsalofttegunda við kjarnastarfsemi félagsins. Öll starfsemi HB Granda losaði samtals um 65 þúsund tonn kolefnisígilda árið 2016, en losunin hafði þá dregist saman um 5% frá árinu á undan. HB Grandi hefur alfarið  hætt brennslu svartolíu og allur úrgangur, bæði á sjó og í landi, er flokkaður.

Loftslag.is. Vefurinn  hóf göngu sína árið 2009 og birtir eingöngu efni um loftslagsmál. Á vefnum má finna margs konar fróðleik, tilvísanir í vísindagreinar, fjölda greina um loftslagsmál og umræðu um það sem er efst á baugi í loftslagsmálum. Einnig má nefna að forsvarsmenn vefsins, í samstarfi við baráttuhópinn París 1,5, lögðu mat á  loftslagsstefnu stjórnmálaflokka fyrir alþingiskosningarnar 2017 og 2016.

ISAVIA. Félagið hefur sett sér metnaðarfull markmið í loftslagsmálum og á milli áranna 2015 og 2016 dró úr heildarlosun þess um 49 tonn kolefnisígilda. Isavia er þátttakandi í Airport Carbon Accreditation, kerfi á vegum Alþjóðasamtaka flugvalla. Verkefnið skiptist alls í fjögur stig; kortlagningu kolefnisspors, markmiðasetningu og minnkun kolefnislosunar, minnkun kolefnislosunar í samstarfi við þriðja aðila (annarra rekstraraðila á flugvellinum) og lokastigið er kolefnisjöfnun flugvallarins. 

Bæði HB Grandi og ISAVIA undirrituðu loftslagsyfirlýsingu Festu og Reykjavíkurborgar, í aðdraganda loftslagsráðstefnunnar í París 2015 og hafa sett sér markmið í loftslagsmálum og birt þau.

Aðrir aðilar sem voru tilnefndir að þessu sinni voru: ÁTVR, Eimskip, Fjallamenn, umhverfisfrettir.is, Náttúruverndarsamtök Íslands, Landvernd, Skógræktarfélag Reykjavíkur og Klappir.

Dómnefndin átti úr vöndu að ráða  en horfði m.a. til þess árangurs sem náðst hafði við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Einnig var litið til þess hvað aðgerða hafði verið  gripið til í þeim tilgangi að upplýsa og fræða um loftslagsmál og að setja fram nýjar lausnir til að draga úr losun.. Bent er á að loftslagsviðurkenningar verða aftur veittar árið 2018 og hægt er að senda strax inn tilnefningar með fyrirsögninni „Loftslagsviðurkenning 2018“

Í dómnefnd sátu S. Björn Blöndal, borgarfulltrúi og formaður borgarráðs, Jóhanna Harpa Árnadóttir verkefnisstjóri samfélagsábyrgðar hjá Landsvirkjun, einnig í stjórn Festuog Lára Jóhannsdóttir PhD og dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Starfsmaður dómnefndar var Hrönn Hrafnsdóttir á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar.