Viðskipti innlent

Leitin að loðnutorfunum hafin og stefnt á norðausturhornið

Kristján Már Unnarsson skrifar
Árni Friðriksson lagði upp í loðnuleitina í dag frá olíubryggjunni í Örfirisey í Reykjavík þar sem hann var fylltur af olíu.
Árni Friðriksson lagði upp í loðnuleitina í dag frá olíubryggjunni í Örfirisey í Reykjavík þar sem hann var fylltur af olíu. Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.

Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson hélt til loðnuleitar úr Reykjavík í dag en frést hefur af loðnu bæði á Vestfjarðamiðum og norðaustur af Melrakkasléttu. Leiðangursstjórinn kveðst samt ekki of bjartsýnn en vill þó lifa í voninni. Myndir frá brottför voru sýndar í fréttum Stöðvar 2.

Um tuttugu manna áhöfn er um borð, þar af fimm vísindamenn, en fiskifræðingurinn Birkir Bárðarson er leiðangursstjóri.

„Ásamt Árna Friðrikssyni þá verða í það minnsta tvö veiðiskip og núna erum við að horfa til að það verði Polar Amaroq, sem er grænlenskt veiðiskip, og Hákon, - þeir muni taka þátt í þessu með okkur. Þar erum við með fólk frá okkur á Hafró um borð hjá þeim,“ segir Birkir.

Birkir Bárðarson fiskifræðingur er leiðangursstjóri.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.

Óvíst var hvort hægt yrði að hefja leiðangurinn í dag vegna veðurs.

„Við ætlum að fara austur fyrir land, suður um, og erum svona að sæta lagi eins og veður leyfir, og þar ætlum við að byrja.“

Leitin mun einkum beinast að hafsvæðum undan Norður- og Austurlandi en fregnir hafa verið að berast af loðnu.

„Við höfum heyrt af loðnu, reyndar bæði af Vestfjarðamiðum og síðan höfum við núna verið að fá fregnir núna frá Rifsbanka og svo austur um.“

Loðnubrestur í fyrra reyndist áfall fyrir hagkerfið enda er áætlað að jafnvel léleg loðnuvertíð geti skilað 15-20 milljarða króna útflutningsverðmæti. Það er því mikið undir að eitthvað finnist.

Áætlað er leiðangurinn taki nítján daga en hann er undir stjórn Hafrannsóknastofnunar.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.

Birkir segir loðnuna mikilvæga afurð en einnig mikilvæga fæðu í vistkerfinu við Ísland.

„Við erum ekkert sérstaklega bjartsýnir í ár. Og það er út af því að síðastliðið haust þá kom lítið út úr mælingunni. Og það er á þessum árgangi sem er uppistaðan að veiðistofninum núna,“ segir Birkir.

Stefnt er á nítján daga leiðangur. Hann vonast því til að hafa einhver svör í kringum næstu mánaðamót.

„En eins og allir, þá bara lifi ég í voninni.“

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Vonast til að finna tuttugu milljarða króna auðlind

Loðnuleit hefst í næstu viku eftir að samkomulag náðist um að ríkið greiði helming leitarkostnaðar útgerðarfyrirtækja, sem leggja fram tvö til þrjú skip í leitina á móti einu skipi Hafrannsóknastofnunar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×