Fara í efni  

Styrkir til íþrótta- og tómstundafélaga á Akranesi

Akraneskaupstaður veitir 20 milljónir til íþrótta- og tómstundafélaga á Akranesi á árinu 2020. Markmiðið er að styðja virk íþrótta- og tómstundafélög á Akranesi til að halda uppi öflugu íþrótta-, félags- og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga. Styrktarsjóðurinn hækkar í ár um 30% en á árinu 2019 voru veittir styrkir að fjárhæð kr. 15,5 milljónir króna. Tilgangur styrkjanna er að veita fjárhagslegan stuðning til þjálfunar og leiðsagnar barna og unglinga á aldrinum 3 - 18 ára. Skilyrði er að félagið hafi starfað í a.m.k. 2 ár og staðið skil á lögformlegum skyldum sínum. 

Hér er sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar  Styrktímabil er 1. janúar - 31. desember 2019. Umsóknarfrestur er til 3. maí 2020. Nánari upplýsingar veitir skóla- og frístundasvið Akraneskaupstaðar í síma 433 1000 eða með tölvupóst á netfangið skoliogfristund@akranes.is  


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00