Ferill 105. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 106  —  105. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um aðgengi að vörum sem innihalda CBD.


Flm.: Halldóra Mogensen, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, Andrés Ingi Jónsson, Björn Leví Gunnarsson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Hanna Katrín Friðriksson, Helga Vala Helgadóttir, Helgi Hrafn Gunnarsson, Jón Þór Ólafsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Smári McCarthy, Vilhjálmur Árnason, Willum Þór Þórsson, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.


    Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að láta fara fram könnun á því regluverki sem gildir um sölu og markaðssetningu á vörum sem innihalda CBD (cannabidiol). Ráðherra leggi í kjölfarið til þær breytingar sem eru nauðsynlegar til að auka aðgengi að vörum sem innihalda CBD. Ráðherra kynni niðurstöður könnunarinnar og tillögur sínar fyrir Alþingi og leggi fram frumvarp, ef þess þarf, á vorþingi 2021.

Greinargerð.

    Þingsályktunartillaga þessi var áður flutt á 150. löggjafarþingi ( 285. mál) og er nú endurflutt með nokkrum breytingum. Þar má fyrst nefna að fallið er frá orðalagi sem kveður á um að CBD verði heimilað í almennri sölu, þess í stað verði ráðherra falið að láta fara fram könnun á því regluverki sem gildir um vörur sem innihalda efnið og beiti sér fyrir viðeigandi breytingum til þess að auka aðgengi að þeim vörum. Er ráðherra þannig veitt meira svigrúm um nákvæma útfærslu verkefnisins með það að markmiði að auka aðgengi að vörum sem innihalda CBD.
    Undanfarin ár hefur hampiðnaðurinn verið í mikilli grósku, bæði hér á landi og erlendis. Leyfisveitingar til ræktunar og nýtingar iðnaðarhamps hafa þannig verið rýmkaðar verulega, m.a. hér á landi þar sem heilbrigðisráðherra heimilaði með reglugerð undanþágu frá ákvæðum laga um ávana- og fíkniefni fyrir innflutningi, meðferð og vörslu fræja tegundarinnar Cannabis sativa í þeim tilgangi að rækta iðnaðarhamp. 1 Síðan þá hefur nokkur fjöldi hafið ræktun iðnaðarhamps hér á landi og virðist sem svo að íslenskar aðstæður henti hampjurtinni afar vel.
    Iðnaðarhampur hefur mikið notagildi og er hann notaður í margar vörur. Samhliða aukinni í ræktun á iðnaðarhampi hefur orðið sprenging í eftirspurn eftir vörum sem nota iðnaðarhamp, m.a. í heilsu- og snyrtivörum, alls kyns iðnaðar- og byggingarvörum, matvælum, fæðubótarefnum, í bílaframleiðslu, pappír og svo mætti lengi telja. Úr jurtinni er einnig hægt að vinna virka efnið cannabidiol (skammstafað CBD) en það hefur m.a. verið notað sem fæðubótarefni, í matvæli, snyrtivörur og sem lyf.
    Samkvæmt 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, er cannabis (kannabis, marihuana, hass) tilgreint sem ávana- og fíkniefni sem fellur undir 1. mgr. 2. gr. laganna. Tekur ákvæðið hvort tveggja til plantna innan kannabisættkvíslarinnar og þeirra efna sem unnin eru úr þeim plöntum. Vegna skilgreiningar á kannabisi og afleiðum þess sem ávana- og fíkniefnis, eða ávana- og fíknilyfs þegar um er að ræða tilbúin lyf, eru vörur sem innihalda afurðir úr kannabis-plöntunni CBD lyfseðilsskyld, eftirritunarskyld og Z-merkt. Slík lyf verða því aðeins fengin gegn ávísun læknis með sérfræðimenntun.
    Núverandi lagaleg staða CBD er óskýr þar sem það er ekki sérstaklega tilgreint í lögum um ávana- og fíkniefni né heldur í reglugerðum settum á grundvelli laganna. Hins vegar hefur CBD (cannabidiol) alla jafna verið skilgreint sem eitt af virkum efnum kannabisplöntunnar, sem flokkast sem ávana- og fíkniefni samkvæmt áðurgreindum lögum. Því má leiða líkur að því að um CBD gildi sömu reglur og um önnur efni sem unnin eru úr kannabisi, þ.e. að einungis sé heimilt að flytja það inn að fengnu markaðsleyfi Lyfjastofnunar, það sé lyfseðilsskylt, eftirritunarskylt og því Z-merkt. Skýtur þetta skökku við þegar um er að ræða efni með óumdeilanlegt notagildi og er hvorki ávanabindandi né vímugjafi.
    Í ljósi þess að CBD er ekki vímugjafi eru engin rök sem standa til þess að það skuli flokkað sem ávana- og fíkniefni. Vörur og lyf sem innihalda CBD geta haft talsvert notagildi fyrir marga einstaklinga og þegar er hér á landi nokkur fjöldi sem notar efnið, þrátt fyrir að lagaleg staða þess sé óskýr.
    Hægt er með einföldum hætti að vinna virka efnið CBD úr iðnaðarhampi sem inniheldur mjög lítið af eða engin vímugefandi efni. Mörg nágrannaríki Íslands hafa farið þá leið að heimila slíka vinnslu og lausasölu á afurðunum þegar styrkleiki virka efnisins THC er innan við skilgreind mörk. Sem dæmi má nefna að í Bretlandi er heimilt að vinna hamptrefjar, olíu og aðrar vörur úr hampjurt að því gefnu að framleiðandinn hafi leyfi fyrir því og að tiltekin skilyrði um magn THC séu uppfyllt. Þegar kemur að lagasetningu um kannabisvörur hefur Evrópusambandið þegar aðgreint THC frá öðrum vörum sem vinna má úr hampjurtinni. Þannig er ræktun og vinnsla úr hampjurtinni lögleg í mörgum Evrópusambandsríkjum þegar um er að ræða plöntur sem innihalda THC-magn undir skilgreindum mörkum. Þær reglur sem gilda um hvaða vörur megi vinna úr jurtinni og fyrirkomulagið á sölu þeirra fer eftir löggjöf hvers lands. Mörg lönd hafa þegar heimilað aukið aðgengi og aukna markaðssetningu á vörum sem innihalda CBD þegar THC-magn er innan marka.
    Eftirspurn eftir vörum sem innihalda CBD hér á landi er nú þegar talsverð. Rétt er að bregðast við þeirri eftirspurn og heimila slíkt aðgengi, enda eru engin rök sem mæla gegn því. Efnið veldur engri vímu, það er ekki ávanabindandi og notkun þess getur verið til hagsbóta fyrir einstaklinga af ýmsum ástæðum. Er því lagt til með þingsályktunartillögu þessari að ráðherra verði falið að gera viðeigandi breytingar á reglugerðum til þess að gera vörur sem innihalda CBD aðgengilegar. Ef þess þarf leggi ráðherra einnig fram frumvarp til laga til nauðsynlegra breytinga á lögum.

1     Reglugerð nr. 355/2020, um breytingu á reglugerð nr. 233/2001, um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni.