Ferill 885. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1751  —  885. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Jóhanni Páli Jóhannssyni um heimaþjónustu ljósmæðra.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Mun ráðherra beita sér fyrir breytingum á rammasamningi milli Sjúkratrygginga Íslands og ljósmæðra til að tryggja að heimaþjónusta ljósmæðra sé veitt öllum foreldrum og börnum fyrstu 10 dagana frá fæðingu óháð því hve lengi þau dvöldu á sængurlegudeild?
     2.      Hvaða breytingar verða gerðar, sbr. orð ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma 13. mars 2023, og hvenær taka þær gildi?


    Rammasamningur er í gildi milli Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) og ljósmæðra um þjónustu ljósmæðra vegna fæðinga og umönnunar sængurkvenna í heimahúsum.
    Heimaþjónusta ljósmæðra í sængurlegu hefur þróast síðustu 25 ár í gegnum þennan samning, stuðlað að faglegri og öruggri þjónustu í sængurlegu í heimahúsi og leitt til styttingar sængurlegu á fæðingarstofnunum og fækkunar endurinnlagna sængurkvenna og barna þeirra.
    Til áframhaldandi þróunar þjónustunnar mun ráðherra leggja til breytingu á gildandi samningi þannig að aðgengi sængurkvenna og fjölskyldna þeirra að þjónustunni verði óháð lengd sængurlegu á stofnun, enda hafi málefnalegar ástæður legið að baki seinkun útskriftar.