hero

Dásamlegar kókoskúlur

Ég elska að henda í dásamlegar kókoskúlur þegar mig langar í eitthvað smá sætt sem inniheldur engan hvítan sykur. Það tekur enga stund að útbúa þær, innihalda aðeins 6 innihaldsefni og æðislegt að eiga þær í ísskápnum (varúð klárast nokkuð hratt!). Krökkunum finnst þær líka rosalega góðar og gera þær stundum sjálf.

Innihald

3 dl saxaðar döðlur lagðar í bleyti

3 dl fínir hafrar frá MUNA

2 msk kakó

2 msk Agave síróp frá MUNA

2 msk fljótandi kókosolía

Kókosmjöl

Aðferð

Allt sett í matvinnsluvél, kúlur mótaðar og þeim velt upp úr kókosmjöli og settar í kæli. Njótið í botn!

Skráðu þig á póstlistann!