hero

Ljúffeng hafrabomba

Þegar ég er í tímaþröng á morgnana þá finnst mér mjög gott að henda í þennan þeyting sem ég kalla hafrabombu en hann inniheldur haframjöl sem gerir þeytinginn trefjaríkari. Það er hægt að leika sér með uppskriftina fram og tilbaka en ég hvet ykkur til þess að prófa þennan dásamlega þeyting sem ég breytti í skál í þessu tilviki og minnka þá aðeins vökvann til þess að gera hann þykkari!

Innihald

1/2 bolli frosin jarðaber

1/2 bolli frosin bláber

1 bolli möndlumjólk eða önnur mjólk

1/2 bolli fínt haframjöl frá MUNA

1 lítill banani

 

Aðferð

Allt sett í blandara og hrært vel saman, hellt í glas eða skál og toppað með því sem ykkur þykir gott, einfaldara gerist það ekki!

Skráðu þig á póstlistann!