Vetrarþjónusta

Til að óþægindi og truflanir verði sem minnstar vegna ófærðar hefur Mannvirkja- og umhverfissvið forgangsraðað vinnu við snjómokstur með tilliti til öryggis íbúa sveitarfélagsins og mikilvægi leiða.

Höfuðáhersla er lögð á að ryðja stofnæðar og svæði við sjúkrahús, öldrunarþjónustu, lögreglustöð og slökkvistöð. Götur í íbúðahverfum eru svo hreinsaðar í beinu framhaldi af því. Við snjómokstur á gangstéttum og göngustígum eru notaðar smærri vélar og er leitast við að sinna þeim verkefnum eins fljótt og mögulegt er.

Við snjóhreinsun íbúagatna er líklegt að við innkeyrslur myndist snjóruðningar sem sveitarfélagið sér ekki um að hreinsa. Það fellur því í hlut íbúanna sjálfra að hreinsa burt snjó úr innkeyrslum.

Snjómokstur er kostnaðarsamur og tekin hefur verið ákvörðun um að sveitarfélagið sér ekki um að moka innkeyrslur að húsum né bílastæði og plön við fyrirtæki. Ef um sérstakar kringumstæður er að ræða, t.d. veikindi eða annað sem kallar á þjónustu umfram þá sem sveitarfélagið veitir, er reynt að koma til móts við þær óskir.

Það eru vinsamleg tilmæli til íbúa sveitarfélagsins að sýna þolinmæði og tillitssemi við þessar kringumstæður.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica