5. feb. 2022 Fjölnota íþróttahús Íþróttir og tómstundastarf

Fyrsta æfingin í Miðgarði í Vetrarmýri

Miðgarður er heitið á nýju fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri í Garðabæ. Fyrsta æfingin innandyra í húsinu var haldin í morgun laugardaginn 5. febrúar þegar bæjarstjórn Garðabæjar opnaði húsið formlega til æfinga.

Miðgarður er heitið á nýju fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri í Garðabæ. Fyrsta æfingin innandyra í húsinu var haldin í morgun laugardaginn 5. febrúar þegar bæjarstjórn Garðabæjar opnaði húsið formlega til æfinga. Við þetta tækifæri fluttu þau Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar og Björg Fenger, forseti bæjarstjórnar og formaður íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar ávörp. 

Ungir knattspyrnuiðkendur úr yngstu knattspyrnuflokkum Stjörnunnar og Ungmennafélagi Álftaness mættu til æfinga um morguninn og gönguhópar úr félögum eldri borgara í Garðabæ og Álftanesi fengu að prófa göngu- og skokkbraut sem liggur um svalirnar í húsinu.

Ein stærsta framkvæmd sem Garðabær hefur ráðist í

Framkvæmdir við Miðgarð, fjölnota íþróttahúsið, sem nú er risið í Vetrarmýri hafa gengið vel. Heildarkostnaður við verkið er um fjórir milljarðar og er ein stærsta framkvæmd sem Garðabær hefur ráðist í. Garðabær samdi við Íslenska aðalverktaka (ÍAV) um alútboð á verkinu í lok árs 2018 en framkvæmdir hófust í byrjun árs 2019. Hönnuðir hússins eru ASK arkitektar og Verkís verkfræðistofa sá um verkfræðihönnun og ÍAV byggði húsið.

Garðabær efndi síðasta haust til nafnasamkeppni um nafn á nýja fjölnota íþróttahúsinu í Garðabæ sem var öllum opin og íbúar hvattir til að taka þátt í. Nafn hússins, Miðgarður, var svo tilkynnt formlega í janúar á þessu ári. Samkvæmt goðafræðinni er Miðgarður miðja heimsins og sá staður þar sem mannfólkið býr. Það rímar vel við hugmyndir um fjölnota íþróttahúsið þar sem vonast er eftir lífi og fjöri á degi hverjum ásamt því að þar verður rými fyrir fjölbreytt viðfangsefni.

Miðgarður er með rými fyrir knattspyrnuvöll í fullri stærð og klifurvegg innanhúss auk teygju- og upphitunaraðstöðu og fyrsta flokks styrktar- og þrekæfingaaðstöðu, ásamt tilheyrandi stoðrýmum og verður því mikil lyftistöng fyrir íþrótta- og heilsueflandi starfsemi í Garðabæ. Stærð íþróttasalarins er um 80x120 m og um 800 áhorfendur rúmast á svölum íþróttasalarins. Í hliðarrýmum sunnan megin í byggingunni eru tvær óráðstafaðar hæðir um 1500 m² að stærð hvor um sig þar sem er gert ráð fyrir heilsutengdri starfsemi. Með anddyri og öðrum stoðrýmum er flatarmál hússins um 18.200 m².

Fleiri myndir frá fyrstu æfingunni má sjá á fésbókarsíðu Garðabæjar.