„Þið vitið fullkomlega hvað er í pakkanum“

Uffe Ellamann-Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur.
Uffe Ellamann-Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Ég hef fyrir löngu gefist upp á því að mynda mér skoðanir á Íslandi og Evrópusambandinu. Það er betra að láta Íslendinga um það. Ég tel að Íslendingar hafi ekki haldið nógu skynsamlega á málum í þeim efnum eins og þeir gera venjulega en það er ykkar vandamál. Þannig að ég læt ykkur um það. Þess utan á sambandið við svo mikla erfiðleika að stríða eins og staðan er í dag að við þurfum ekki fleiri vandræðagemsa innan veggja þess.“

Þetta segir Uffe Ellemann-Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur, í samtali við mbl.is og hlær við í lokin en hann hefur lengi verið áhugasamur um að bæði Ísland og Noregur gengju í Evrópusambandið. Bendir hann á í þeim efnum að hans eigin landar, Danir, hafi líka valdið samrunaþróuninni innan sambandsins vandræðum. Talið berst að Bretum sem einnig hafa verið sakaðir um að vera vandræðagemsar innan Evrópusambandsins en eru nú á útleið úr því. Ellemann-Jensen segist þeirrar skoðunar að útgangan úr sambandinu eigi eftir að valda Bretum miklum erfiðleikum og verða þeim miklu kostnaðarsamari en ráðamenn þeirra vilji meina.

„Fyrir Evrópusambandið og vestræn ríki er útganga Bretlands erfið vegna tímasetningarinnar. Þegar fyrir hendi eru gríðarlegir erfiðleikar vegna Rússlands og þessi nýi forseti hefur tekið við völdum í Bandaríkjunum. Þetta eru tímar sem kalla á evrópska samvinnu, að varnir álfunnar séu styrktar og svo framvegis. Þetta er ekki besta tímasetningin til þess að takast á við slíkt vandamál. Þetta er klúður og mér finnst satt að segja stundum svolítið erfitt að halda í bjartsýnina,“ segir hann.

Heimskulegt að reisa múra og stöðva frjáls viðskipti

Spurður hvort önnur ríki sem eru innan Evrópusambandsins í dag eigi eftir að segja skilið við sambandið segist Ellemann-Jensen ekki telja að fleiri ríki muni beinlínis yfirgefa það þó erfitt sé til að mynda að segja til um hvernig forsetakosningarnar í Frakklandi í apríl kunni að fara. Sama sé að segja um þingkosningarnar í Hollandi síðar í þessum mánuði. Vísar hann þar til mögulegs árangurs Marine Le Pen, leiðtoga frönsku Þjóðfylkingarinnar, og Geerts Wilders, leiðtoga hollenska Frelsisflokksins.

„Síðan erum við með ríki eins og Ungverjaland og Pólland sem eru einfaldlega ekki að standa við þær skuldbindingar sem þau gáfu við inngönguna í Evrópusambandið. Þannig að sambandið á við mikla erfiðleika að stríða. Vandamálið er að við höfum orðið vitni af uppgangi þjóðernisíhaldsmanna sem eru af allt öðrum toga en sú frjálslynda íhaldstefna sem ég aðhyllist. En þjóðernisíhaldsstefna finnst meðal annars i boðskap Donalds Trump um að setja Bandaríkin í fyrsta sæti,“ segir hann.

Skilaboðin séu þau að hægt sé að taka á flóttamannavandanum og öðrum vandamálum með því að reisa múra og stöðva frjáls viðskipti. Það séu heimskulegar hugmyndir. Lausnin í þeim efnum sé þvert á móti meiri samvinna á milli ríkja. Spurður hvernig hann telji æskilegt að Evrópusambandið þróist til framtíðar segir Ellemann-Jensen að vænlegast sé að samrunaþróunin eigi sér stað á mismunandi hraða og að tekið verði tillit til hvers ríkis. Staðan hafi í raun lengi verið með þeim hætti.

„Vitanlega er Evrópusambandið ekki lokaður pakki“

„En á sama tíma verður að standa fast á því að ríki geta ekki bara tínt rúsínurnar af kökunni. Þannig virkar það ekki. Það eru ekki í boði endalaus jól fyrir suma en aðra ekki. Ríki verða að taka þátt eða segja skilið við Evrópusambandið. Og það er það sem Bretar eiga eftir að komast harkalega að raun um. Þeir eiga eftir að komast að því að þeir geta ekki bæði átt kökuna og borðað hana og það á sínum eigin forsendum,“ segir Ullemann-Jensen ennfremur.

Talið berst að umræðunni um Evrópusambandið á Íslandi þar sem stundum hefur verið talað um að sækja þurfi um inngöngu í sambandið og fá samning á borðið til þess að sjá hvað sé í boði. Hvað sé í pakkanum eins og það hefur gjarnan verið orðað. Spurður hvort raunveruleikinn sé með þeim hætti segir Ellemann-Jensen að svo sé alls ekki. „Þið vitið fullkomlega hvað er í pakkanum. En stundum þurfa stjórnmálamenn að gefa eitthvað eftir til þess að fá það sem er í kassanum og þá tapa þeir vitinu. Eða kjarkinum.“ Þá hefjist ómaklegar ásakanir í garð Evrópusambandsins.

„Vitanlega er Evrópusambandið ekki lokaður pakki. Þið vitið hvað þið væruð að fara út í. Og ef þið eruð ekki reiðubúin til þess, haldið ykkur þá fyrir utan sambandið. Það er það besta sem þið getið gert,“ segir hann að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert