Sendið inn tillögur að tilnefningum til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2022

Þema ársins er náttúrumiðaðar lausnir – alhliða svar við hinum stóru umhverfisáskorunum samfélagsins. Nú getur þú sent inn tillögur.

Verðlaunaféð nemur 300 þúsundum danskra króna og verðlaunin verða veitt einhverjum á Norðurlöndum sem lyft hefur grettistaki í þágu umhverfisins með náttúrumiðaðri lausn. Öll geta sent inn tillögur.

Frestur til að skila inn tillögum var til 10. maí 2022.