Hoppa yfir valmynd
20. október 2021 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Fræðsluefni um ofbeldisforvarnir á einum stað

Menntamálastofnun hefur sett í loftið upplýsingavef þar sem nálgast má fjölbreytt fræðsluefni um kynferðislegt og kynbundið ofbeldi og áreiti sem miðað er að nemendum í leik-, grunn- og framhaldsskólum.

Á vefnum er að finna aldursskipt yfirlit yfir bækur, kennsluleiðbeiningar, fræðsluþætti, stuttmyndir og vefi sem nýst geta við fræðslu til barna og ungmenna. Þá er einnig að finna á vefnum upplýsingar um hvert börn og ungmenni sem eru þolendur ofbeldis geta leitað.

Vefurinn stoppofbeldi.namsefni.is er öllum opinn, ritstjórar efnis hans eru Sigrún Sóley Jökulsdóttir og Harpa Pálmadóttir.

Verkefnið er liður í aðgerðaáætlun þingsályktunar um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni sem samþykkt var á Alþingi í júní 2020.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum