Innlent

Umbúðir utan um Sambó kremlakkrís fara öfugt ofan í fólk

Þorgeir Helgason skrifar
Myndin af umbúðunum sem að hvarf af vörulista Ó. Johnson & Kaaber.
Myndin af umbúðunum sem að hvarf af vörulista Ó. Johnson & Kaaber. Mynd/ojk.is
„Það er merkilegt að þeir vilji tengja við svona gamla kynþáttafordóma,“ segir Kristín Loftsdóttir, prófessor í mannfræði. Umræða hefur spunnist síðustu daga um sælgætisgerðina Kólus og umbúðir sem prýða kremlakkrís frá þeim.

Kólus framleiðir lakkrís undir heitinu Sambó en það er einnig rasískt hugtak í ensku. Hugtakið sem á við einstakling sem á hvíta og hörundslitaða forfeður hefur verið notað með niðrandi merkingu frá því um miðja 19. öld.

Kjartan Páll Kjartansson, framkvæmdarstjóri Kólus, segir ekkert rasískt vera við umbúðirnar og segir strákinn á umbúðunum vera litla svarta Sambó sem er indverskur drengur úr bókinni Sagan af litla svarta Sambó. Hann skilur ekki hvers vegna fólk er að gera mál úr þessu og segir þetta einfaldlega vera móðursýki. Bókin hefur verið harðlega gagnrýnd en hún er sögð einkennast af fordómum vegna staðlaðra hugmynda um svart fólk og þá sérstaklega teikningar bókarinnar.

Kristín Loftsdóttir, prófessor í mannfræði.vísir/valli
„Það er ekki íslensk uppfinning að teikna fólk sem er með dökkt litaraft á þennan hátt. Þetta eru bein áhrif frá rasistaímyndum sem voru sterkar víða í Evrópu í lok 19. og í byrjun 20. aldar. Í bókinni hans Muggs um negrastrákana tíu sjáum við sömu ímynd í teikningum bókarinnar. Mér þykir mjög merkilegt að þetta fyrirtæki vilji tengja vöru sína við kynþáttafordóma,“ segir Kristín.

Árið 2007 kom svipað mál til kastanna þegar bókaútgáfan Skrudda endurútgaf bókina Negrastrákarnir. Kristín rannsakaði og greindi umræðuna um útgáfuna en niðurstaða hennar var að innfæddir Íslendingar skiptust í tvo hópa sem voru á öndverðum meiði um skilaboð bókarinnar en innflytjendum á Íslandi þótti bókin lýsa fordómum.

Ó. Johnson & Kaaber eru dreifingaraðili fyrir Kólus. Á vörulista vefsíðu fyrirtækisins mátti á fimmtudag finna mynd af umbúðunum en í gær var myndin horfin. Alfreð Jóhannsson, sölustjóri hjá Ó. Johnson & Kaaber, segir tilviljun að myndin sé horfin af vefnum og að það hafi ekki verið ætlunin að fjarlægja hana.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×