Loðnutorfur loksins fundnar út af Hornströndum og Húnaflóa Kristján Már Unnarsson skrifar 22. janúar 2020 16:18 Fyrstu loðnutorfur vetrarins eru fundnar á Íslandsmiðum. Leitarleiðangur þriggja skipa undir forystu hafrannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar sá torfur norður af Hornströndum og Húnaflóa. „Þetta er nú ekkert gríðarlegt magn sem við sáum í heildina,“ sagði Birkir Bárðarson leiðangursstjóri í samtali við fréttastofu nú um miðjan dag en Árni Friðriksson var þá að koma í höfn á Ísafirði. Fylgjast má með leitinni á heimasíðu Hafrannsóknastofnunar. Birkir Bárðarson fiskifræðingur er leiðangursstjóri loðnuleitarinnarStöð 2/Friðrik Þór Halldórsson. „Við sáum eitthvað af loðnu vestur af Kolbeinseyjarhrygg,“ sagði fiskifræðingurinn en loðna sást á svæði um það bil þrjátíu mílur vestur af Kolbeinseyjarhrygg og að Kögurgrunni. Þar vestur af er ís á dreif. Birkir sagði þetta mestu loðnuna sem þeir hefðu séð til þessa í leiðangrinum og fyrstu eiginlegu loðnutorfurnar. Hann taldi samt ekki tilefni til sérstakrar bjartsýni. Staðan væri óbreytt en spyrja þyrfti að leikslokum. Á fjórða tímanum í dag voru skipin þrjú ýmist komin í var undan veðrinu eða á leið í var. Sjá mátti Árna Friðriksson, ljósbláan, í höfn á Ísafirði. Hákon EA, táknaður með bleikum lit, var í mynni Skutulsfjarðar. Polar Amaroq, táknaður með gulum lit, var að nálgast mynni Ísafjarðardjúps.Mynd/Hafrannsóknastofnun. „Við erum að leggja að á Ísafirði, komnir í var. Það er orðið óvinnandi hérna úti,“ sagði Birkir og gerði ráð fyrir að þeir þyrftu að bíða af sér veðrið næstu tvo sólarhringa. Veðurútlitið væri þannig að vart yrði farið út aftur fyrr en á föstudag. Þá yrði haldið áfram að kanna Vestfjarðamið vestur fyrir Víkurál í þessari umferð. Í febrúar væri svo stefnt að því að fara í annan leiðangur. Hér má sjá frétt Stöðvar 2 um leiðangurinn þegar lagt var af stað í byrjun síðustu viku: Fjarðabyggð Ísafjarðarbær Sjávarútvegur Vestmannaeyjar Tengdar fréttir Loðnuleiðangurinn á hraðri siglingu í átt til Vestfjarða Hléið sem loðnuleitarleiðangur Hafrannsóknastofnunar gerði á loðnuleitinni í gær vegna illviðris reyndist mun styttra en búist var við. Skipin þrjú lögðu öll úr höfn frá Akureyri á ný í kringum miðnætti. 21. janúar 2020 13:07 Hundrað milljónir á dag í húfi í Vestmannaeyjum Vestmannaeyjar gætu orðið af 5,8 milljarða króna útflutningstekjum, bregðist loðnuvertíð annað árið í röð. Þetta kemur fram í greiningu hagfræðideildar Landsbankans. 18. janúar 2020 13:39 Vonast til að finna tuttugu milljarða króna auðlind Loðnuleit hefst í næstu viku eftir að samkomulag náðist um að ríkið greiði helming leitarkostnaðar útgerðarfyrirtækja, sem leggja fram tvö til þrjú skip í leitina á móti einu skipi Hafrannsóknastofnunar. 8. janúar 2020 21:15 Stutt hlé gert á loðnuleitinni meðan stormur gengur yfir Leiðangursstjórinn segir mjög lítið hafa sést af loðnu, aðeins hrafl eða smátorfur á stangli en hvergi neitt verulegt magn. Hann telur að loðnan sé ekki gengin austur fyrir Kolbeinseyjarhrygg. 20. janúar 2020 11:10 Mest lesið Innsigla B5 að kröfu Skattsins Viðskipti innlent Endurgjöf: Það sem þú átt ekki að gera Atvinnulíf Eitruð vinnustaðamenning algeng og margfaldar líkur á kulnun Atvinnulíf Sagðir vilja frekar loka TikTok en selja Viðskipti erlent Nú er hægt að elta góða veðrið um landið með kortavef Já.is Samstarf Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Sækjast eftir fangelsisdómi yfir rafmyntakóngi Viðskipti erlent Helmingur Íslendinga sáttur við falsanir og eftirlíkanir Neytendur Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Viðskipti innlent Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Innsigla B5 að kröfu Skattsins Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Farsímatekjur undir væntingum Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Minnsta verðbólga í rúm tvö ár Tekjuhæsti fyrsti ársfjórðungur í sögu Icelandair Hefja viðræður um kaup á 47 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Anna Kristín nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth Oculis komið á markað Viðskipti með bréf í Oculis hefjast á morgun Hættir sem fjármálastýra Ljósleiðarans Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Grænna skáta Fækkuðu tímum í skriffinnsku um tugi klukkustunda á mánuði Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni Opna verslun á Keflavíkurflugvelli þar sem Arion var áður Bein útsending: Hraunflæðihermar og hönnun hraunvarna Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Bein útsending: Hrein tækifæri í orkumálum Fljúga til Wales í haust í tengslum við landsleikina Þau vilja stýra Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum Edda og Helgi bætast í hóp eigenda Expectus Sjá meira
Fyrstu loðnutorfur vetrarins eru fundnar á Íslandsmiðum. Leitarleiðangur þriggja skipa undir forystu hafrannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar sá torfur norður af Hornströndum og Húnaflóa. „Þetta er nú ekkert gríðarlegt magn sem við sáum í heildina,“ sagði Birkir Bárðarson leiðangursstjóri í samtali við fréttastofu nú um miðjan dag en Árni Friðriksson var þá að koma í höfn á Ísafirði. Fylgjast má með leitinni á heimasíðu Hafrannsóknastofnunar. Birkir Bárðarson fiskifræðingur er leiðangursstjóri loðnuleitarinnarStöð 2/Friðrik Þór Halldórsson. „Við sáum eitthvað af loðnu vestur af Kolbeinseyjarhrygg,“ sagði fiskifræðingurinn en loðna sást á svæði um það bil þrjátíu mílur vestur af Kolbeinseyjarhrygg og að Kögurgrunni. Þar vestur af er ís á dreif. Birkir sagði þetta mestu loðnuna sem þeir hefðu séð til þessa í leiðangrinum og fyrstu eiginlegu loðnutorfurnar. Hann taldi samt ekki tilefni til sérstakrar bjartsýni. Staðan væri óbreytt en spyrja þyrfti að leikslokum. Á fjórða tímanum í dag voru skipin þrjú ýmist komin í var undan veðrinu eða á leið í var. Sjá mátti Árna Friðriksson, ljósbláan, í höfn á Ísafirði. Hákon EA, táknaður með bleikum lit, var í mynni Skutulsfjarðar. Polar Amaroq, táknaður með gulum lit, var að nálgast mynni Ísafjarðardjúps.Mynd/Hafrannsóknastofnun. „Við erum að leggja að á Ísafirði, komnir í var. Það er orðið óvinnandi hérna úti,“ sagði Birkir og gerði ráð fyrir að þeir þyrftu að bíða af sér veðrið næstu tvo sólarhringa. Veðurútlitið væri þannig að vart yrði farið út aftur fyrr en á föstudag. Þá yrði haldið áfram að kanna Vestfjarðamið vestur fyrir Víkurál í þessari umferð. Í febrúar væri svo stefnt að því að fara í annan leiðangur. Hér má sjá frétt Stöðvar 2 um leiðangurinn þegar lagt var af stað í byrjun síðustu viku:
Fjarðabyggð Ísafjarðarbær Sjávarútvegur Vestmannaeyjar Tengdar fréttir Loðnuleiðangurinn á hraðri siglingu í átt til Vestfjarða Hléið sem loðnuleitarleiðangur Hafrannsóknastofnunar gerði á loðnuleitinni í gær vegna illviðris reyndist mun styttra en búist var við. Skipin þrjú lögðu öll úr höfn frá Akureyri á ný í kringum miðnætti. 21. janúar 2020 13:07 Hundrað milljónir á dag í húfi í Vestmannaeyjum Vestmannaeyjar gætu orðið af 5,8 milljarða króna útflutningstekjum, bregðist loðnuvertíð annað árið í röð. Þetta kemur fram í greiningu hagfræðideildar Landsbankans. 18. janúar 2020 13:39 Vonast til að finna tuttugu milljarða króna auðlind Loðnuleit hefst í næstu viku eftir að samkomulag náðist um að ríkið greiði helming leitarkostnaðar útgerðarfyrirtækja, sem leggja fram tvö til þrjú skip í leitina á móti einu skipi Hafrannsóknastofnunar. 8. janúar 2020 21:15 Stutt hlé gert á loðnuleitinni meðan stormur gengur yfir Leiðangursstjórinn segir mjög lítið hafa sést af loðnu, aðeins hrafl eða smátorfur á stangli en hvergi neitt verulegt magn. Hann telur að loðnan sé ekki gengin austur fyrir Kolbeinseyjarhrygg. 20. janúar 2020 11:10 Mest lesið Innsigla B5 að kröfu Skattsins Viðskipti innlent Endurgjöf: Það sem þú átt ekki að gera Atvinnulíf Eitruð vinnustaðamenning algeng og margfaldar líkur á kulnun Atvinnulíf Sagðir vilja frekar loka TikTok en selja Viðskipti erlent Nú er hægt að elta góða veðrið um landið með kortavef Já.is Samstarf Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Sækjast eftir fangelsisdómi yfir rafmyntakóngi Viðskipti erlent Helmingur Íslendinga sáttur við falsanir og eftirlíkanir Neytendur Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Viðskipti innlent Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Innsigla B5 að kröfu Skattsins Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Farsímatekjur undir væntingum Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Minnsta verðbólga í rúm tvö ár Tekjuhæsti fyrsti ársfjórðungur í sögu Icelandair Hefja viðræður um kaup á 47 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Anna Kristín nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth Oculis komið á markað Viðskipti með bréf í Oculis hefjast á morgun Hættir sem fjármálastýra Ljósleiðarans Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Grænna skáta Fækkuðu tímum í skriffinnsku um tugi klukkustunda á mánuði Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni Opna verslun á Keflavíkurflugvelli þar sem Arion var áður Bein útsending: Hraunflæðihermar og hönnun hraunvarna Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Bein útsending: Hrein tækifæri í orkumálum Fljúga til Wales í haust í tengslum við landsleikina Þau vilja stýra Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum Edda og Helgi bætast í hóp eigenda Expectus Sjá meira
Loðnuleiðangurinn á hraðri siglingu í átt til Vestfjarða Hléið sem loðnuleitarleiðangur Hafrannsóknastofnunar gerði á loðnuleitinni í gær vegna illviðris reyndist mun styttra en búist var við. Skipin þrjú lögðu öll úr höfn frá Akureyri á ný í kringum miðnætti. 21. janúar 2020 13:07
Hundrað milljónir á dag í húfi í Vestmannaeyjum Vestmannaeyjar gætu orðið af 5,8 milljarða króna útflutningstekjum, bregðist loðnuvertíð annað árið í röð. Þetta kemur fram í greiningu hagfræðideildar Landsbankans. 18. janúar 2020 13:39
Vonast til að finna tuttugu milljarða króna auðlind Loðnuleit hefst í næstu viku eftir að samkomulag náðist um að ríkið greiði helming leitarkostnaðar útgerðarfyrirtækja, sem leggja fram tvö til þrjú skip í leitina á móti einu skipi Hafrannsóknastofnunar. 8. janúar 2020 21:15
Stutt hlé gert á loðnuleitinni meðan stormur gengur yfir Leiðangursstjórinn segir mjög lítið hafa sést af loðnu, aðeins hrafl eða smátorfur á stangli en hvergi neitt verulegt magn. Hann telur að loðnan sé ekki gengin austur fyrir Kolbeinseyjarhrygg. 20. janúar 2020 11:10