Stutt hlé gert á loðnuleitinni meðan stormur gengur yfir Kristján Már Unnarsson skrifar 20. janúar 2020 11:10 Leitarferlarnir klukkan ellefu í morgun. Búið er að fara yfir Austfjarðamið, vestur með Norðurlandi og norður eftir Kolbeinseyjarhrygg. Hvert skip hefur sinn lit. Ljósblár er Árni Friðriksson, bleikur er Hákon, gulur er Polar Amaroq, rauður er Ásgrímur Halldórsson og hvítur er Bjarni Ólafsson, Mynd/Hafrannsóknastofnun. Skipin fimm, sem hófu loðnuleitina í síðustu viku, eru nú ýmist öll komin í land eða rétt ókomin. Einnig var fjallað um leitina í fréttum Stöðvar 2. „Það er ekki vinnuveður eins og er. Við erum í 24-25 metrum á sekúndu á leið í land,“ sagði Birkir Bárðarson, fiskifræðingur og leiðangursstjóri, um borð í Árna Friðrikssyni nú fyrir hádegi en hafrannsóknaskipið var þá statt úti fyrir mynni Eyjafjarðar. „Við bíðum af okkur þennan hvell. Förum inn á Akureyri og þar þurfum við að láta kíkja á hliðarskrúfu í leiðinni,“ sagði Birkir. -En hvað hafa þeir séð af loðnu til þessa? „Í stuttu máli mjög lítið. Þetta hefur verið hrafl eða smátorfur á stangli en við höfum ekki séð neitt verulegt magn. Það segir okkur að loðna er ekki gengin austur fyrir Kolbeinseyjarhrygg.“ Fiskifræðingurinn Birkir Bárðarson stýrir loðnuleitinni um borð í hafrannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson. Veiðiskipin Ásgrímur Halldórsson SF og Bjarni Ólafsson AK sneru til hafna á Hornafirði og Norðfirði um helgina eftir að hafa lokið yfirferð um Austfjarðamið og er þeirra hlutverki lokið í bili. Fiskiskipin Hákon EA og Polar Amaroq komu inn til Akureyrar í morgun en þau munu síðan halda áfram leitinni ásamt Árna Friðrikssyni. Fylgjast má með leitinni á rauntíma á heimasíðu Hafrannsóknastofnunar. „Við förum út aftur um leið og þetta gengur yfir. Mér sýnist veðurspáin vera þannig að það geti orðið upp úr hádegi á morgun,“ sagði Birkir. „Við förum næst vestur fyrir Kolbeinseyjarhrygg og höldum síðan vestur með landgrunnskantinum, til Vestfjarða. Ætli við klárum þetta alveg niður í Víkurál.“ Akureyri Sjávarútvegur Tengdar fréttir Fiskifræðingurinn segir mælingu loðnustofnsins afar mikilvæga Leitarskipin, sem hefja loðnuleitina, gætu orðið fjögur og eru þau ýmist komin austur á firði eða á leið þangað. Leiðangursstjórinn Birkir Bárðarson segir afar þýðingarmikið að fá góða mælingu á loðnuna. 14. janúar 2020 12:15 Hundrað milljónir á dag í húfi í Vestmannaeyjum Vestmannaeyjar gætu orðið af 5,8 milljarða króna útflutningstekjum, bregðist loðnuvertíð annað árið í röð. Þetta kemur fram í greiningu hagfræðideildar Landsbankans. 18. janúar 2020 13:39 Vonast til að finna tuttugu milljarða króna auðlind Loðnuleit hefst í næstu viku eftir að samkomulag náðist um að ríkið greiði helming leitarkostnaðar útgerðarfyrirtækja, sem leggja fram tvö til þrjú skip í leitina á móti einu skipi Hafrannsóknastofnunar. 8. janúar 2020 21:15 Leitin að loðnutorfunum hafin og stefnt á norðausturhornið Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson hélt til loðnuleitar úr Reykjavík í dag en frést hefur af loðnu bæði á Vestfjarðamiðum og norðaustur af Melrakkasléttu. 13. janúar 2020 22:00 Mest lesið Hvað er opið um páskana? Neytendur Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Viðskipti innlent Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Lok, lok og læs hjá Gló Viðskipti innlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Íslendingar duglegastir í heimi að kaupa Samsonite-ferðatöskur Samstarf Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina“ heimsótti Landakotsskóla Sjá meira
Skipin fimm, sem hófu loðnuleitina í síðustu viku, eru nú ýmist öll komin í land eða rétt ókomin. Einnig var fjallað um leitina í fréttum Stöðvar 2. „Það er ekki vinnuveður eins og er. Við erum í 24-25 metrum á sekúndu á leið í land,“ sagði Birkir Bárðarson, fiskifræðingur og leiðangursstjóri, um borð í Árna Friðrikssyni nú fyrir hádegi en hafrannsóknaskipið var þá statt úti fyrir mynni Eyjafjarðar. „Við bíðum af okkur þennan hvell. Förum inn á Akureyri og þar þurfum við að láta kíkja á hliðarskrúfu í leiðinni,“ sagði Birkir. -En hvað hafa þeir séð af loðnu til þessa? „Í stuttu máli mjög lítið. Þetta hefur verið hrafl eða smátorfur á stangli en við höfum ekki séð neitt verulegt magn. Það segir okkur að loðna er ekki gengin austur fyrir Kolbeinseyjarhrygg.“ Fiskifræðingurinn Birkir Bárðarson stýrir loðnuleitinni um borð í hafrannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson. Veiðiskipin Ásgrímur Halldórsson SF og Bjarni Ólafsson AK sneru til hafna á Hornafirði og Norðfirði um helgina eftir að hafa lokið yfirferð um Austfjarðamið og er þeirra hlutverki lokið í bili. Fiskiskipin Hákon EA og Polar Amaroq komu inn til Akureyrar í morgun en þau munu síðan halda áfram leitinni ásamt Árna Friðrikssyni. Fylgjast má með leitinni á rauntíma á heimasíðu Hafrannsóknastofnunar. „Við förum út aftur um leið og þetta gengur yfir. Mér sýnist veðurspáin vera þannig að það geti orðið upp úr hádegi á morgun,“ sagði Birkir. „Við förum næst vestur fyrir Kolbeinseyjarhrygg og höldum síðan vestur með landgrunnskantinum, til Vestfjarða. Ætli við klárum þetta alveg niður í Víkurál.“
Akureyri Sjávarútvegur Tengdar fréttir Fiskifræðingurinn segir mælingu loðnustofnsins afar mikilvæga Leitarskipin, sem hefja loðnuleitina, gætu orðið fjögur og eru þau ýmist komin austur á firði eða á leið þangað. Leiðangursstjórinn Birkir Bárðarson segir afar þýðingarmikið að fá góða mælingu á loðnuna. 14. janúar 2020 12:15 Hundrað milljónir á dag í húfi í Vestmannaeyjum Vestmannaeyjar gætu orðið af 5,8 milljarða króna útflutningstekjum, bregðist loðnuvertíð annað árið í röð. Þetta kemur fram í greiningu hagfræðideildar Landsbankans. 18. janúar 2020 13:39 Vonast til að finna tuttugu milljarða króna auðlind Loðnuleit hefst í næstu viku eftir að samkomulag náðist um að ríkið greiði helming leitarkostnaðar útgerðarfyrirtækja, sem leggja fram tvö til þrjú skip í leitina á móti einu skipi Hafrannsóknastofnunar. 8. janúar 2020 21:15 Leitin að loðnutorfunum hafin og stefnt á norðausturhornið Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson hélt til loðnuleitar úr Reykjavík í dag en frést hefur af loðnu bæði á Vestfjarðamiðum og norðaustur af Melrakkasléttu. 13. janúar 2020 22:00 Mest lesið Hvað er opið um páskana? Neytendur Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Viðskipti innlent Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Lok, lok og læs hjá Gló Viðskipti innlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Íslendingar duglegastir í heimi að kaupa Samsonite-ferðatöskur Samstarf Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina“ heimsótti Landakotsskóla Sjá meira
Fiskifræðingurinn segir mælingu loðnustofnsins afar mikilvæga Leitarskipin, sem hefja loðnuleitina, gætu orðið fjögur og eru þau ýmist komin austur á firði eða á leið þangað. Leiðangursstjórinn Birkir Bárðarson segir afar þýðingarmikið að fá góða mælingu á loðnuna. 14. janúar 2020 12:15
Hundrað milljónir á dag í húfi í Vestmannaeyjum Vestmannaeyjar gætu orðið af 5,8 milljarða króna útflutningstekjum, bregðist loðnuvertíð annað árið í röð. Þetta kemur fram í greiningu hagfræðideildar Landsbankans. 18. janúar 2020 13:39
Vonast til að finna tuttugu milljarða króna auðlind Loðnuleit hefst í næstu viku eftir að samkomulag náðist um að ríkið greiði helming leitarkostnaðar útgerðarfyrirtækja, sem leggja fram tvö til þrjú skip í leitina á móti einu skipi Hafrannsóknastofnunar. 8. janúar 2020 21:15
Leitin að loðnutorfunum hafin og stefnt á norðausturhornið Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson hélt til loðnuleitar úr Reykjavík í dag en frést hefur af loðnu bæði á Vestfjarðamiðum og norðaustur af Melrakkasléttu. 13. janúar 2020 22:00