Skoðun

Nei, það á ekki að niðurgreiða sálfræðiþjónustu

Þórarinn Hjartarson skrifar

Niðurgreiðsla sálfræðiþjónustu myndi auka eftirspurn án aukningar á framboðshliðinni. Fólk sem þarf ekki á sálfræðiþjónustunni að halda myndi sækja slíka tíma og biðlistar sem nú þegar eru til staðar margfaldast. Stjórnmálamenn eru að nýta sér vanlíðan ungs fólks í aðdraganda kosninga. Þeir fleygja fram ævintýralega fjarstæðukenndum hugmyndum um aðgengi að sálfræðiþjónustu án þess að svara því hvernig á standa við loforðin. Pólitískum andstæðingum hugnast ekki að setja sig upp gegn þessu því enginn vill vera sá stjórnmálamaður sem vildi ekki aðstoða fólk í neyð. Sálfræðingar og fólk í vanda eru pólitískt barefli.

Víða má heyra slagorð á borð við „niðurgreiðum sálfræðiþjónustu strax“ og „útrýmum biðlistum“. En hvað þýða þessi orð? Í færslu frá því árinu 2017 á vef ADHD-samtakanna segir:

„Sálfræðiþjónusta er líka heilbrigðisþjónusta að mati nær allra landsmanna. Yfir 90% svarenda í nýrri könnun Gallup, sem gerð var fyrir Öryrkjabandalag Íslands, telja að sálfræðiþjónusta og tannlækningar eigi að vera niðurgreidd fyrir alla Íslendinga með sama hætti og önnur heilbrigðisþjónusta eins og þjónusta heilsugæslu, sjúkrahúsa og sérfræðilækna.“

Íslendingar vilja koma samlöndum sínum til aðstoðar. Þó svo að viljinn sé fyrir hendi skortir yfirsýn. Það er vissulega vandamál að þeir sem þurfa helst á niðurgreiðslu að halda séu tekjulágir hópar og öryrkjar, sem eiga síður efni á þjónustunni. En slagorðið „tekjutengd niðurgreiðsla sálfræðiþjónustu fyrir tekjulágahópa strax í dag“ hljómar ekki jafn vel og „niðurgreiðum sálfræðiþjónustu“. Í viðtali sem ég tók nýverið við formann Sálfræðingafélags Íslands kom fram að það virðist skorta samtal milli Sjúkratrygginga Íslands (sem að öllum líkindum myndu koma til með að sjá um niðurgreiðsluferlið) og stétt sálfræðinga. Enginn virðist hafa hugmynd um hvernig nákvæmlega skuli staðið að þessu.

Að auka fjármagn til að takast á við þennan vanda gæti verið skynsamleg leið. Hægt væri að auka framlög til menntastofnanna til þess að útskrifa fleiri sálfræðinga. Ef útrýma á biðlistum þarf að auka sálfræðitíma sem fólki stendur til boða. Ef sálfræðiþjónusta verður niðurgreidd að fullu til allra þeirra sem sækjast eftir henni mun það leggja kerfið á hliðina. Þeir sem þurfa nauðsynlega á þjónustunni að halda myndu ekki komast að og sálræn líðan landsmanna kæmi til með að líða fyrir það.

Ágæti stefnu og hugsjóna stjórnmálamanna ætti ekki meta út frá fyrirhuguðum markmiðum heldur út frá því hvaða áhrif þær hafa í raun og veru. Það er lýðskrum að segjast ætla að leysa vanda án þess að útskýra hvernig takast skuli gert.

Höfundur er þáttastjórnandi í hlaðvarpinu Ein Pæling.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×