Verður ríkisábyrgð sett á þúsund milljarða? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 16. nóvember 2022 10:01 Komi til þess að ný tilskipun Evrópusambandsins um innistæðutryggingar verði innleidd á Íslandi vegna aðildar landsins að EES-samningnum mun það að öllum líkindum þýða að ríkisábyrgð verði sett á bankainnistæður upp á um eitt þúsund milljarða króna. Málið snýst í raun um kjarna Icesave-málsins enda ljóst að hefði umrædd löggjöf verið í gildi hér á landi þegar málið kom upp á sínum tíma hefði það tapast. Deilan um Icesave snerist sem kunnugt er um það hvort íslenzk ríkisábyrgð væri á bankainnistæðum í útibúum viðskiptabankanna þriggja, sem féllu haustið 2008, í Bretlandi og Hollandi á grundvelli eldri tilskipunar Evrópusambandsins um innistæðutryggingar. Fór svo að lokum að EFTA-dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu í byrjun árs 2013 að slík ábyrgð væri ekki fyrir hendi og sýknaði íslenzka ríkið. Viðbrögð Evrópusambandsins við alþjóðlegu fjármálakrísunni fyrir rúmum áratug, og um leið Icesave-málinu, voru meðal annars þau að endurskoða löggjöf þess um innistæðutryggingar. Trygging vegna innistæðna var færð úr 20.000 evrum upp í 100.000 evrur (um 15 milljónir króna) á hvern einstakling í hverri fjármálastofnun og stjórnvöldum gert að tryggja að tryggingasjóðir stæðu við skuldbindingar sínar. Telja ólíklegt að undanþága verði veitt Hérlend stjórnvöld hafa hafnað ríkisábyrgð á innistæðum og upphaflega var einnig lagzt gegn því að tryggingin væri færð upp í 100.000 evrur. Árið 2020 var sú fjárhæð hins vegar innleidd í íslenzk lög. Greint var frá því í frétt Innherja í janúar á þessu ári að tryggðar innistæður hér á landi væru um eitt þúsund milljarðar króna, miðað við 100.000 evra trygginguna, sem samsvaraði um þriðjungi af landsframleiðslu. Fram kom í ræðu sem Guðlaugur Þór Þórðarson, þáverandi utanríkisráðherra, flutti á Alþingi í október 2019 að Íslendingar ættu eftir að tapa Icesave-málum framtíðarinnar yrði tilskipunin innleidd hér á landi. Greindi hann þinginu frá því að sérfræðingar Evrópusambandsins hefðu staðfest í svari við fyrirspurn íslenzkra stjórnvalda að þar á bæ væri litið svo á að tilskipunin fæli í sér ríkisábyrgð á innistæðum. Fyrir vikið sagði Guðlaugur Þór að brýnt væri að Ísland fengi undanþágu frá tilskipuninni þar sem kerfislæg áhætta væri meiri hér á landi en í fjölmennari ríkjum. Sagðist hann hafa ítrekað lagt áherzlu á það á vettvangi EES-samstarfsins. Hins vegar kom fram í frétt mbl.is í janúar 2020 að samkvæmt sameiginlegu svari utanríkis- og fjármálaráðuneytisins væri ólíklegt að undanþága fengist vegna eðlis málsins. Tekur ekki mið af íslenzkum hagsmunum Tilskipunin hefur ekki enn verið tekin fyrir í sameiginlegu EES-nefndinni þar sem löggjöf frá Evrópusambandinu er formlega tekin upp í EES-samninginn. Takmarkaðar upplýsingar hafa fengizt frá stjórnvöldum um nánari stöðu málsins og þar með talið hvort engu að síður verði látið reyna á undanþágu frá tilskipuninni eða hvort til greina komi að beita svonefndu neitunarvaldi í samningnum í ljósi alvarleika málsins. Málið er annars ágætlega lýsandi fyrir þann veruleika að Evrópusambandið er í raun alls staðar við stjórnvölinn þegar EES-samningurinn er annars vegar. Þannig er til að mynda undir sambandinu komið hvaða löggjöf þess fellur undir hann og enn fremur hvort veittar verði einhverjar undanþágur í þeim efnum. Þá getur einungis Evrópusambandið breytt þeirri löggjöf sem tekin hefur verið upp í samninginn. Hins vegar er leið út úr þessum aðstæðum sem ríki heimsins kjósa allajafna að fara í dag þegar þau semja um milliríkjaviðskipti. Víðtækur fríverzlunarsamningur. Leið sem, ólíkt EES-samningnum og í enn ríkari mæli inngöngu í Evrópusambandið, felur ekki í sér vaxandi framsal valds yfir íslenzkum málum í gegnum regluverk sem er ekki okkar, tekur ekki mið af okkar hagsmunum og við getum ekki breytt. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál). Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Evrópusambandið Íslenskir bankar Utanríkismál Efnahagsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Heilbrigðiskerfi Íslands - Tími fyrir lausnir! Victor Gudmundsson Skoðun Banvænt aðgerðarleysi Tómas A. Tómasson Skoðun Hvers vegna þurfti að farga bókinni? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ísland hástökkvari í málefnum hinsegin fólks Guðmundur Ingi Guðbrandsson Skoðun Hjarta umhverfismála Margrét Júlía Rafnsdóttir Skoðun Forseti sem svarar á mannamáli Erna Ástþórsdóttir Skoðun „Ég kýs homma“ Óli Gunnar Gunnarsson Skoðun Hugsjónir og fræðimennska – einstakt veganesti Baldurs í embætti forseta Íslands Rannveig Traustadóttir Skoðun Kletturinn Katrín Júlía Margrét Alexandersdóttir Skoðun Almenn kvíðaröskun: léttvægt vandamál eða áhyggjuefni? Sævar Már Gústavsson Skoðun Skoðun Skoðun Náttúruminjasafn Íslands má sinna sýningahaldi! Hilmar J. Malmquist skrifar Skoðun Hvers vegna þurfti að farga bókinni? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hjarta umhverfismála Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Hugsjónir og fræðimennska – einstakt veganesti Baldurs í embætti forseta Íslands Rannveig Traustadóttir skrifar Skoðun Ísland hástökkvari í málefnum hinsegin fólks Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Banvænt aðgerðarleysi Tómas A. Tómasson skrifar Skoðun Viltu koma í ferðalag? Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun „Ég kýs homma“ Óli Gunnar Gunnarsson skrifar Skoðun Forseti sem svarar á mannamáli Erna Ástþórsdóttir skrifar Skoðun Hugrekki Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Afvegaleiðing SFS? Friðleifur Egill Guðmundsson skrifar Skoðun Jón Gnarr fyrir dýraverndina Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Mannréttindastofnun verður að veruleika Jódís Skúladóttir skrifar Skoðun Samstarf við landsbyggðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Lausnin út í mýri? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Sigþórsdóttir skrifar Skoðun Takk Ísland fyrir upplýsandi kosningabaráttu! Tómas Ellert Tómasson skrifar Skoðun Forseti sem gefur kjark og von Mamiko Dís Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Við unga fólkið viljum fá sæti við borðið Selma Rós Axelsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfi Íslands - Tími fyrir lausnir! Victor Gudmundsson skrifar Skoðun Offita er langvinnur sjúkdómur Hópur fólks í stjórn Félags fagfólks um offitu skrifar Skoðun Reykjavíkurborg svíkur íbúa Laugardals Grétar Már Axelsson skrifar Skoðun Mynda þurfti ríkisstjórn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kletturinn Katrín Júlía Margrét Alexandersdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun er svarið Nótt Thorberg skrifar Skoðun Aleinn í heiminum? Lukka Sigurðardóttir,Katrín Harðardóttir ,Margrét Kristín Blöndal skrifar Skoðun Ísland í öðru sæti Regnbogakortsins um réttindi hinsegin fólks Bjarndís Helga Tómasdóttir,Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun Almenn kvíðaröskun: léttvægt vandamál eða áhyggjuefni? Sævar Már Gústavsson skrifar Skoðun Lokað á börn í vanda Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Sérstök vitleysa Albert Björn Lúðvígsson skrifar Skoðun Fjarheilbrigðisþjónusta Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Komi til þess að ný tilskipun Evrópusambandsins um innistæðutryggingar verði innleidd á Íslandi vegna aðildar landsins að EES-samningnum mun það að öllum líkindum þýða að ríkisábyrgð verði sett á bankainnistæður upp á um eitt þúsund milljarða króna. Málið snýst í raun um kjarna Icesave-málsins enda ljóst að hefði umrædd löggjöf verið í gildi hér á landi þegar málið kom upp á sínum tíma hefði það tapast. Deilan um Icesave snerist sem kunnugt er um það hvort íslenzk ríkisábyrgð væri á bankainnistæðum í útibúum viðskiptabankanna þriggja, sem féllu haustið 2008, í Bretlandi og Hollandi á grundvelli eldri tilskipunar Evrópusambandsins um innistæðutryggingar. Fór svo að lokum að EFTA-dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu í byrjun árs 2013 að slík ábyrgð væri ekki fyrir hendi og sýknaði íslenzka ríkið. Viðbrögð Evrópusambandsins við alþjóðlegu fjármálakrísunni fyrir rúmum áratug, og um leið Icesave-málinu, voru meðal annars þau að endurskoða löggjöf þess um innistæðutryggingar. Trygging vegna innistæðna var færð úr 20.000 evrum upp í 100.000 evrur (um 15 milljónir króna) á hvern einstakling í hverri fjármálastofnun og stjórnvöldum gert að tryggja að tryggingasjóðir stæðu við skuldbindingar sínar. Telja ólíklegt að undanþága verði veitt Hérlend stjórnvöld hafa hafnað ríkisábyrgð á innistæðum og upphaflega var einnig lagzt gegn því að tryggingin væri færð upp í 100.000 evrur. Árið 2020 var sú fjárhæð hins vegar innleidd í íslenzk lög. Greint var frá því í frétt Innherja í janúar á þessu ári að tryggðar innistæður hér á landi væru um eitt þúsund milljarðar króna, miðað við 100.000 evra trygginguna, sem samsvaraði um þriðjungi af landsframleiðslu. Fram kom í ræðu sem Guðlaugur Þór Þórðarson, þáverandi utanríkisráðherra, flutti á Alþingi í október 2019 að Íslendingar ættu eftir að tapa Icesave-málum framtíðarinnar yrði tilskipunin innleidd hér á landi. Greindi hann þinginu frá því að sérfræðingar Evrópusambandsins hefðu staðfest í svari við fyrirspurn íslenzkra stjórnvalda að þar á bæ væri litið svo á að tilskipunin fæli í sér ríkisábyrgð á innistæðum. Fyrir vikið sagði Guðlaugur Þór að brýnt væri að Ísland fengi undanþágu frá tilskipuninni þar sem kerfislæg áhætta væri meiri hér á landi en í fjölmennari ríkjum. Sagðist hann hafa ítrekað lagt áherzlu á það á vettvangi EES-samstarfsins. Hins vegar kom fram í frétt mbl.is í janúar 2020 að samkvæmt sameiginlegu svari utanríkis- og fjármálaráðuneytisins væri ólíklegt að undanþága fengist vegna eðlis málsins. Tekur ekki mið af íslenzkum hagsmunum Tilskipunin hefur ekki enn verið tekin fyrir í sameiginlegu EES-nefndinni þar sem löggjöf frá Evrópusambandinu er formlega tekin upp í EES-samninginn. Takmarkaðar upplýsingar hafa fengizt frá stjórnvöldum um nánari stöðu málsins og þar með talið hvort engu að síður verði látið reyna á undanþágu frá tilskipuninni eða hvort til greina komi að beita svonefndu neitunarvaldi í samningnum í ljósi alvarleika málsins. Málið er annars ágætlega lýsandi fyrir þann veruleika að Evrópusambandið er í raun alls staðar við stjórnvölinn þegar EES-samningurinn er annars vegar. Þannig er til að mynda undir sambandinu komið hvaða löggjöf þess fellur undir hann og enn fremur hvort veittar verði einhverjar undanþágur í þeim efnum. Þá getur einungis Evrópusambandið breytt þeirri löggjöf sem tekin hefur verið upp í samninginn. Hins vegar er leið út úr þessum aðstæðum sem ríki heimsins kjósa allajafna að fara í dag þegar þau semja um milliríkjaviðskipti. Víðtækur fríverzlunarsamningur. Leið sem, ólíkt EES-samningnum og í enn ríkari mæli inngöngu í Evrópusambandið, felur ekki í sér vaxandi framsal valds yfir íslenzkum málum í gegnum regluverk sem er ekki okkar, tekur ekki mið af okkar hagsmunum og við getum ekki breytt. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál).
Hugsjónir og fræðimennska – einstakt veganesti Baldurs í embætti forseta Íslands Rannveig Traustadóttir Skoðun
Skoðun Hugsjónir og fræðimennska – einstakt veganesti Baldurs í embætti forseta Íslands Rannveig Traustadóttir skrifar
Skoðun Ísland í öðru sæti Regnbogakortsins um réttindi hinsegin fólks Bjarndís Helga Tómasdóttir,Daníel E. Arnarsson skrifar
Hugsjónir og fræðimennska – einstakt veganesti Baldurs í embætti forseta Íslands Rannveig Traustadóttir Skoðun