„Þarf að fara og sækja tekjur þar sem svigrúm er“ Ólafur Björn Sverrisson skrifar 24. ágúst 2023 22:29 Kristrún ræddi verðbólgu og aðgerðir gegn henni í kvöldfréttum Stöðvar 2. vísir/arnar Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar segir verðbólguvæntingar benda til þess að almenningur hafi ekki trú á því að ríkisstjórnin geti náð verðbólgu niður. Fjármagna þurfi að fullu næsta kjarapakka sem sé ómögulegt með ríkisstjórn sem geti ekki komið sér saman um ákvarðanir. Stýrivextir voru hækkaðir um 0,5 prósent í gær sem er meira en hafði verið spáð fyrir um. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 var rætt við formann neytendasamtakanna telur að ferðaþjónustan eigi að axla ábyrgð á verðbólgunni en ekki neytendur. Kristrún ræddi málið sömuleiðis í kvöldfréttum: Segir hún að aðgerðir Seðlabankans skýrist að einhverju leyti af aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar. „Það er þannig að þegar ríkið gerir minna þá þarf Seðlabankinn að gera meira. Það þarf ekki annað en að horfa á þessa runu stýrivaxtahækkana til að átta sig á því að það er ákveðið andvaraleysi hjá ríkinu,“ segir Kristrún. Verðbólguvæntingar séu enn háar sem bendi til þess að almenningur hafi ekki trú á því að ríkisstjórnin geti ekki náð verðbólgunni niður. Gamlar tillögur kallaðar nýjar lausnir Spurð hvað hún myndi sjálf gera í stöðunni sem upp er komin, segir Kristrún að það hafi ekki staðið á tillögum úr hennar flokki. „Við lögðum fram kjarapakka í tengslum við fjárlög í fyrra. Í vor vorum við með verkefnalista þar sem við kölluðum etir vaxtabótaauka. Við töluðum um leigubremsu og höfum talað um barnabætur og húsnæðisbætur í gegnum tíðina.“ Segir hún að ríkisstjórnin hafi hins vegar lagt fram gamlar tillögur og kallað þær nýjar lausnir. „Það er oft verið að tala um hækkanir á barnabótum sem reynast miklu lægri en raun ber vitni. Við spáðum fyrir um það fyrir jól, þegar fjárlög voru samþykkt og takmörkuð úrræði komu, að venjulegt fólk myndi bara finna það á eigin skinni hvort ríkisstjórnin væri að segja satt um þær tillögur sem hún var að leggja til. Vegna þess að fólk finnur það ef peningurinn er að koma inn til þeirra eða ekki. Núna upplifir fólk kjararýrnun og ofan á það koma þessar stýrivaxtahækkanir.“ Sækja fjármagn í fjármagnstekjur og hærri bankaskatt Hún segir að áhersla innan Samfylkingar verði lögð á kjarapakka í haust og aðgerðir á húsnæðismarkaði. „Fyrst og fremst viljum við að þessar aðgerðir verði fjármagnaðar. Það þarf að fara og sækja tekjur þar sem svigrúm er til tekjuauka.“ Hvar? „Til að mynda í fjármagnstekjum. Við höfum kallað eftir því að klóruð sé til baka þessi lækkun á bankaskattinum á sínum tíma. Við viljum líka horfa almennt á staði þar sem þensla hefur verið í samfélaginu. Það gengur ekki að ríkisstjórnin sé stöðugt að koma með vilyrði sem eru ekki fjármögnuð. Það er lykilatriði nú í aðdraganda kjarasamninga að það komi kjarapakki sem verkalýðsforystunni og vinnumarkaðnum hugnast þannig að það sé minni pressa á launahækkanir. En það þarf að vera fjármagnað að fullu og rúmlega það svo þetta leiti ekki inn í verðbólgu. Þar þarf pólítiska forystu en vandinn er sá að þar getur þessi stjórn ekki komið sér saman um ákvarðanir.“ Seðlabankinn Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Samfylkingin Fjármál heimilisins Efnahagsmál Alþingi Tengdar fréttir Skilur gagnrýnina en Seðlabankinn þurfi að ná niður háum verðbólguvæntingum „Við erum að beita peningastefnunni svona harkalega af því að við erum ekki að fá mikla aðstoð frá öðrum,“ segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, en viðurkennir um leið að þegar vextirnir eru hækkaðir svona skarpt þá sé hætta á að það valdi harðri lendingu í efnahagslífinu. Fjórtánda vaxtahækkun peningastefnunefndar Seðlabankans í röð á rétt rúmlega tveimur árum, nú síðast í morgun um 50 punkta, var nánast alfarið réttlætt með vísun til hárra verðbólguvæntinga til lengri tíma á meðan flestir hagvísar sýna að farið er að hægja hraðar á umsvifum í hagkerfinu en áður var spáð. 23. ágúst 2023 18:19 Vaxtahækkanir Seðlabankans ýti undir verðbólgu Stýrivextir hafa ríflega tólffaldast á tveimur árum og hafa ekki verið hærri í fjórtán ár. Seðlabankastjóri segir verðhækkanir, þenslu í ferðaþjónustu og spennu á vinnumarkaði skýra hækkun vaxta. Hagsmunasamtök og verkalýðsfélög fordæmdu hækkunina í dag. 23. ágúst 2023 19:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira
Stýrivextir voru hækkaðir um 0,5 prósent í gær sem er meira en hafði verið spáð fyrir um. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 var rætt við formann neytendasamtakanna telur að ferðaþjónustan eigi að axla ábyrgð á verðbólgunni en ekki neytendur. Kristrún ræddi málið sömuleiðis í kvöldfréttum: Segir hún að aðgerðir Seðlabankans skýrist að einhverju leyti af aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar. „Það er þannig að þegar ríkið gerir minna þá þarf Seðlabankinn að gera meira. Það þarf ekki annað en að horfa á þessa runu stýrivaxtahækkana til að átta sig á því að það er ákveðið andvaraleysi hjá ríkinu,“ segir Kristrún. Verðbólguvæntingar séu enn háar sem bendi til þess að almenningur hafi ekki trú á því að ríkisstjórnin geti ekki náð verðbólgunni niður. Gamlar tillögur kallaðar nýjar lausnir Spurð hvað hún myndi sjálf gera í stöðunni sem upp er komin, segir Kristrún að það hafi ekki staðið á tillögum úr hennar flokki. „Við lögðum fram kjarapakka í tengslum við fjárlög í fyrra. Í vor vorum við með verkefnalista þar sem við kölluðum etir vaxtabótaauka. Við töluðum um leigubremsu og höfum talað um barnabætur og húsnæðisbætur í gegnum tíðina.“ Segir hún að ríkisstjórnin hafi hins vegar lagt fram gamlar tillögur og kallað þær nýjar lausnir. „Það er oft verið að tala um hækkanir á barnabótum sem reynast miklu lægri en raun ber vitni. Við spáðum fyrir um það fyrir jól, þegar fjárlög voru samþykkt og takmörkuð úrræði komu, að venjulegt fólk myndi bara finna það á eigin skinni hvort ríkisstjórnin væri að segja satt um þær tillögur sem hún var að leggja til. Vegna þess að fólk finnur það ef peningurinn er að koma inn til þeirra eða ekki. Núna upplifir fólk kjararýrnun og ofan á það koma þessar stýrivaxtahækkanir.“ Sækja fjármagn í fjármagnstekjur og hærri bankaskatt Hún segir að áhersla innan Samfylkingar verði lögð á kjarapakka í haust og aðgerðir á húsnæðismarkaði. „Fyrst og fremst viljum við að þessar aðgerðir verði fjármagnaðar. Það þarf að fara og sækja tekjur þar sem svigrúm er til tekjuauka.“ Hvar? „Til að mynda í fjármagnstekjum. Við höfum kallað eftir því að klóruð sé til baka þessi lækkun á bankaskattinum á sínum tíma. Við viljum líka horfa almennt á staði þar sem þensla hefur verið í samfélaginu. Það gengur ekki að ríkisstjórnin sé stöðugt að koma með vilyrði sem eru ekki fjármögnuð. Það er lykilatriði nú í aðdraganda kjarasamninga að það komi kjarapakki sem verkalýðsforystunni og vinnumarkaðnum hugnast þannig að það sé minni pressa á launahækkanir. En það þarf að vera fjármagnað að fullu og rúmlega það svo þetta leiti ekki inn í verðbólgu. Þar þarf pólítiska forystu en vandinn er sá að þar getur þessi stjórn ekki komið sér saman um ákvarðanir.“
Seðlabankinn Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Samfylkingin Fjármál heimilisins Efnahagsmál Alþingi Tengdar fréttir Skilur gagnrýnina en Seðlabankinn þurfi að ná niður háum verðbólguvæntingum „Við erum að beita peningastefnunni svona harkalega af því að við erum ekki að fá mikla aðstoð frá öðrum,“ segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, en viðurkennir um leið að þegar vextirnir eru hækkaðir svona skarpt þá sé hætta á að það valdi harðri lendingu í efnahagslífinu. Fjórtánda vaxtahækkun peningastefnunefndar Seðlabankans í röð á rétt rúmlega tveimur árum, nú síðast í morgun um 50 punkta, var nánast alfarið réttlætt með vísun til hárra verðbólguvæntinga til lengri tíma á meðan flestir hagvísar sýna að farið er að hægja hraðar á umsvifum í hagkerfinu en áður var spáð. 23. ágúst 2023 18:19 Vaxtahækkanir Seðlabankans ýti undir verðbólgu Stýrivextir hafa ríflega tólffaldast á tveimur árum og hafa ekki verið hærri í fjórtán ár. Seðlabankastjóri segir verðhækkanir, þenslu í ferðaþjónustu og spennu á vinnumarkaði skýra hækkun vaxta. Hagsmunasamtök og verkalýðsfélög fordæmdu hækkunina í dag. 23. ágúst 2023 19:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira
Skilur gagnrýnina en Seðlabankinn þurfi að ná niður háum verðbólguvæntingum „Við erum að beita peningastefnunni svona harkalega af því að við erum ekki að fá mikla aðstoð frá öðrum,“ segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, en viðurkennir um leið að þegar vextirnir eru hækkaðir svona skarpt þá sé hætta á að það valdi harðri lendingu í efnahagslífinu. Fjórtánda vaxtahækkun peningastefnunefndar Seðlabankans í röð á rétt rúmlega tveimur árum, nú síðast í morgun um 50 punkta, var nánast alfarið réttlætt með vísun til hárra verðbólguvæntinga til lengri tíma á meðan flestir hagvísar sýna að farið er að hægja hraðar á umsvifum í hagkerfinu en áður var spáð. 23. ágúst 2023 18:19
Vaxtahækkanir Seðlabankans ýti undir verðbólgu Stýrivextir hafa ríflega tólffaldast á tveimur árum og hafa ekki verið hærri í fjórtán ár. Seðlabankastjóri segir verðhækkanir, þenslu í ferðaþjónustu og spennu á vinnumarkaði skýra hækkun vaxta. Hagsmunasamtök og verkalýðsfélög fordæmdu hækkunina í dag. 23. ágúst 2023 19:00