Veraldleg þjóð í hlekkjum þjóðkirkju Sveinn Atli Gunnarsson skrifar 22. nóvember 2020 18:00 Í könnun sem Siðmennt lét framkvæma nýlega kom fram að trúuðum á Íslandi heldur áfram að fækka og eru núna tæplega 42% af þjóðinni, á móti hefur trúlausum fjölgað og eru um 36% og bilið á milli þessara hópa heldur því áfram að minnka, en sá samanburður kemur m.a. úr sambærilegri könnun sem Siðmennt lét gera 2015. Þetta kemur í sjálfu sér ekkert á óvart enda er þetta þróun sem hefur átt sér stað í áratugi bæði hér á landi svo og annars staðar og á sama tíma hefur hægt og bítandi fækkað í Þjóðkirkjunni. Í dag telja um 25% sig eiga samleið með Þjóðkirkjunni en samt eru yfir 60% Íslendinga skráð í Þjóðkirkjuna. Hluta af þessari skekkju má sjálfsagt skrifa á hvernig skráningu í trúfélög er og hefur verið háttað í gegnum tíðina þar sem börn hafa verið skráð sjálfkrafa í trúfélag foreldra (áður sjálfkrafa í trúfélag móður) við fæðingu og fáir taka raunverulega afstöðu til þeirrar skráningar. Hefðir og venjur ráða auðvitað einhverju líka, fólk vill gjarnan tilheyra í samfélaginu og það getur því verið erfitt að slíta sig frá stærsta trúfélaginu þó að samleið við það sé lítil sem engin. Yfir helmingur þjóðarinnar er í dag hlynntur aðskilnaði ríkis og kirkju, en aðeins um 30% styðja núverandi fyrirkomulag, það er því ljóst að þau 60% sem eru enn skráð í Þjóðkirkjuna eiga mörg hver litla samleið með henni. En hvaða möguleika hefur fólk til að losna úr viðjum kirkjunnar og til nútímalegri valkosts. Ég tel að Siðmennt sé góður kostur fyrir okkur trúleysingjana, enda er svo margt í lífinu sem krefst þess að maður sé hluti af einhverskonar samfélagi fólks með svipuð viðhorf til lífsins. Á lífsbrautinni eru svo mörg verkefni og athafnir sem fólk þarf að fara í gegnum og hefur sögulega verið gert af prestum landsins, til að mynda nafngjafir, fermingar, giftingar og útfarir, en það er m.a. hlutverk Siðmenntar að standa fyrir þessum mikilvægu og sjálfsögðu athöfnum á veraldlegum nótum. Athafnaþjónusta Siðmenntar er nútímalegur og veraldlegur valkostur fyrir þá sem vilja fagna tímamótum í lífinu án þess að blanda trúarbrögðum í spilið. Siðmennt aðhyllist siðrænan húmanisma sem fjallar m.a. um að leitast við að tryggja réttlæti og sanngirni og um leið útrýma umburðarleysi og ofsóknum, en það þýðir einnig almennt umburðarlyndi gagnvart trúarbrögðum. Þannig að Siðmennt er góður valkostur fyrir þau okkar sem hafa veraldlega sýn á lífið og tilveruna. Til að vera viss um að skráning í trú- og lífsskoðunarfélag sé rétt hjá Þjóðskrá þá hvet ég fólk til að fara inn á www.skra.is og athuga málið, það tekur bara eitt augnablik. Það gæti komið á óvart hvernig þinni skráningu er háttað, en þú getur haft áhrif með því að ákveða hvaða hópi þú tilheyrir. Það er einfalt mál og sjálfsagt að taka þá meðvituðu ákvörðun að stjórna þinni trúfélagsskráningu og stjórna því hvernig þínum sóknargjöldum er ráðstafað - þú ræður því. Höfundur er varaformaður í stjórn Siðmenntar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Trúmál Þjóðkirkjan Sveinn Atli Gunnarsson Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið #Katrín er minn forseti Elín Hirst Skoðun Kjósum Helgu Þórisdóttur Ragnheiður Stefánsdóttir Skoðun Má brjóta lög? Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Framtíð Dalanna heillar Garðar Freyr Vilhjálmsson Skoðun Grunnskóli á krossgötum Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Árnadóttir,Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir Skoðun Skapandi ónákvæmni tveggja hagfræðinga Sirrý Hallgrímsdóttir Skoðun Svart er það og yfirgangur mikill Magnús Guðmundsson Skoðun Að skilja íslenskt félagslegt viðmið Valerio Gargiulo Skoðun Af hverju Helgu Þórisdóttur? Haukur Arnþórsson Skoðun Öryggisógnir í breyttum heimi Jóhann Friðrik Friðriksson Skoðun Skoðun Skoðun #Katrín er minn forseti Elín Hirst skrifar Skoðun Svart er það og yfirgangur mikill Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Um sjálfstæði þjóðar Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Skapandi ónákvæmni tveggja hagfræðinga Sirrý Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Af hverju Helgu Þórisdóttur? Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Kjósum Helgu Þórisdóttur Ragnheiður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Má brjóta lög? Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Að skilja íslenskt félagslegt viðmið Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Traust og gagnsæi Halldór Auðar Svansson skrifar Skoðun Framtíð Dalanna heillar Garðar Freyr Vilhjálmsson skrifar Skoðun Grunnskóli á krossgötum Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Árnadóttir,Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir skrifar Skoðun Öryggisógnir í breyttum heimi Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Höfnum óeðlilegri hagnýtingu sjálfboðaliða Ástþór Jón Ragnheiðarson skrifar Skoðun Að skilja faglega Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: Læknafélag Íslands skilar ekki auðu Steinunn Þórðardóttir,Oddur Steinarsson,Thelma Kristinsdóttir,Katrín Ragna Kemp,Magdalena Ásgeirsdóttir,Margrét Ólafía Tómasdóttir,Ragnar Freyr Ingvarsson,Teitur Ari Theodórsson,Theódór Skúli Sigurðsson skrifar Skoðun Áttu efnaða foreldra eða ekki? Thelma Lind Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Farsæl hagræðing í kjötiðnaði innan ramma samkeppnislaga Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Kennarar – á hraðbraut í kulnun Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfi Íslands – horfum til framtíðar Egill Steinar Ágústsson skrifar Skoðun Er of mikill hiti í hleðslunni hjá þér? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Hvað felst í frumvarpi til laga um breytingu á húsaleigulögum? Hildur Ýr Viðarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju eru kaupin á TM ekki á dagskrá aðalfundar Landsbankans? Ásthildur Lóa Þórsdóttir skrifar Skoðun Skortur á möguleikanum á dánaraðstoð leiðir til þess að fólk tekur eigið líf Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Varnargarðar utan um fólkið í Grindavík Guðbrandur Einarsson skrifar Skoðun Meiri pening, takk Gunnar Úlfarsson skrifar Skoðun Gervigreind og máttur tungumálsins Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Sameinum 2. og 3. deild karla í knattspyrnu Bergvin Oddsson skrifar Skoðun Skynsamlegt að selja Íslandsbanka Teitur Björn Einarsson skrifar Skoðun Gleymdu börnin Kolbrún Pálsdóttir skrifar Skoðun Vinstri gráir Yngvi Óttarsson skrifar Sjá meira
Í könnun sem Siðmennt lét framkvæma nýlega kom fram að trúuðum á Íslandi heldur áfram að fækka og eru núna tæplega 42% af þjóðinni, á móti hefur trúlausum fjölgað og eru um 36% og bilið á milli þessara hópa heldur því áfram að minnka, en sá samanburður kemur m.a. úr sambærilegri könnun sem Siðmennt lét gera 2015. Þetta kemur í sjálfu sér ekkert á óvart enda er þetta þróun sem hefur átt sér stað í áratugi bæði hér á landi svo og annars staðar og á sama tíma hefur hægt og bítandi fækkað í Þjóðkirkjunni. Í dag telja um 25% sig eiga samleið með Þjóðkirkjunni en samt eru yfir 60% Íslendinga skráð í Þjóðkirkjuna. Hluta af þessari skekkju má sjálfsagt skrifa á hvernig skráningu í trúfélög er og hefur verið háttað í gegnum tíðina þar sem börn hafa verið skráð sjálfkrafa í trúfélag foreldra (áður sjálfkrafa í trúfélag móður) við fæðingu og fáir taka raunverulega afstöðu til þeirrar skráningar. Hefðir og venjur ráða auðvitað einhverju líka, fólk vill gjarnan tilheyra í samfélaginu og það getur því verið erfitt að slíta sig frá stærsta trúfélaginu þó að samleið við það sé lítil sem engin. Yfir helmingur þjóðarinnar er í dag hlynntur aðskilnaði ríkis og kirkju, en aðeins um 30% styðja núverandi fyrirkomulag, það er því ljóst að þau 60% sem eru enn skráð í Þjóðkirkjuna eiga mörg hver litla samleið með henni. En hvaða möguleika hefur fólk til að losna úr viðjum kirkjunnar og til nútímalegri valkosts. Ég tel að Siðmennt sé góður kostur fyrir okkur trúleysingjana, enda er svo margt í lífinu sem krefst þess að maður sé hluti af einhverskonar samfélagi fólks með svipuð viðhorf til lífsins. Á lífsbrautinni eru svo mörg verkefni og athafnir sem fólk þarf að fara í gegnum og hefur sögulega verið gert af prestum landsins, til að mynda nafngjafir, fermingar, giftingar og útfarir, en það er m.a. hlutverk Siðmenntar að standa fyrir þessum mikilvægu og sjálfsögðu athöfnum á veraldlegum nótum. Athafnaþjónusta Siðmenntar er nútímalegur og veraldlegur valkostur fyrir þá sem vilja fagna tímamótum í lífinu án þess að blanda trúarbrögðum í spilið. Siðmennt aðhyllist siðrænan húmanisma sem fjallar m.a. um að leitast við að tryggja réttlæti og sanngirni og um leið útrýma umburðarleysi og ofsóknum, en það þýðir einnig almennt umburðarlyndi gagnvart trúarbrögðum. Þannig að Siðmennt er góður valkostur fyrir þau okkar sem hafa veraldlega sýn á lífið og tilveruna. Til að vera viss um að skráning í trú- og lífsskoðunarfélag sé rétt hjá Þjóðskrá þá hvet ég fólk til að fara inn á www.skra.is og athuga málið, það tekur bara eitt augnablik. Það gæti komið á óvart hvernig þinni skráningu er háttað, en þú getur haft áhrif með því að ákveða hvaða hópi þú tilheyrir. Það er einfalt mál og sjálfsagt að taka þá meðvituðu ákvörðun að stjórna þinni trúfélagsskráningu og stjórna því hvernig þínum sóknargjöldum er ráðstafað - þú ræður því. Höfundur er varaformaður í stjórn Siðmenntar.
Grunnskóli á krossgötum Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Árnadóttir,Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir Skoðun
Skoðun Grunnskóli á krossgötum Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Árnadóttir,Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir skrifar
Skoðun Dánaraðstoð: Læknafélag Íslands skilar ekki auðu Steinunn Þórðardóttir,Oddur Steinarsson,Thelma Kristinsdóttir,Katrín Ragna Kemp,Magdalena Ásgeirsdóttir,Margrét Ólafía Tómasdóttir,Ragnar Freyr Ingvarsson,Teitur Ari Theodórsson,Theódór Skúli Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað felst í frumvarpi til laga um breytingu á húsaleigulögum? Hildur Ýr Viðarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju eru kaupin á TM ekki á dagskrá aðalfundar Landsbankans? Ásthildur Lóa Þórsdóttir skrifar
Skoðun Skortur á möguleikanum á dánaraðstoð leiðir til þess að fólk tekur eigið líf Ingrid Kuhlman skrifar
Grunnskóli á krossgötum Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Árnadóttir,Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir Skoðun