Sólarvarnir barna: þetta þarftu að vita
Mikilvægt er að passa upp á sólarvarnir barna í sumar, og hér eru minnispunktar á íslensku, pólsku og ensku fyrir foreldra og aðila sem bjóða upp á námskeið eða annað sumarstarf fyrir börn.
Eitt af markmiðum Krabbameinsfélagsins er að fækka þeim sem fá krabbamein með öflugum forvörnum. Sólarvarnir skipta miklu máli fyrir alla og sérstaklega fyrir börn, sem eru viðkvæmari fyrir sólargeislum, en skaði af völdum sólar getur leitt til húðkrabbameins síðar á ævinni.
Á Íslandi þarf að huga að sólarvörnum frá apríl fram í september, sér í lagi í júní og júlí milli klukkan 10 og 16. Þetta er tíminn sem mörg börn eru á sumarnámskeiðum eða öðru tómstundastarfi og því mikilvægt að þar sé gætt vel að sólarvörnum í samvinnu við foreldra.
Krabbameinsfélagið mælir ekki með eða á móti ákveðnum gerðum sólarvarnakrema, svo lengi sem þau eru með stuðulinn 30 til 50+, en bendir á að oft er hægt að leita ráða í apótekum.
- Minnisblað fyrir foreldra og aðra sem bera ábyrgð á börnum á sumrin (íslenska, á prentvænu formi)
- Information for parents and others responsible for children in the summer (English)
- Informacje dla rodziców (Polskie)
Frekara efni um sólarvarnir:
- Á heimasíðu Krabbameinsfélagsins er að finna fjölbreytt efni tengt sólarvörnum.
- Á heimasíðu norska krabbameinsfélagsins er fjölbreytt efni tengt sólarvörnum barna.
Birt í júní 2021.